Í gær framlengdi hin unga og efnilega Sara Björk Gunnarsdóttir samning sinn til ársins 2010 . Þetta eru gríðargóðar fréttir fyrir Hauka, enda Sara Björk ein efnilegasta knattspyrnukona landsins. Sara Björk er einungis 16 ára en verður 17 ára síðar í þessum mánuði.
Sara Björk lék 11 meistaraflokksleiki fyrir Hauka í sumar og skoraði í þeim leikjum 13 mörk. Sara lék sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2004 en þá var hún aðeins 14 ára gömul, en á því tímabili lék hún 3 leiki.
Sara Björk varð svo fyrir því óláni að meiðast í skólaferðalagi í apríl árið 2005 og varð frá keppni í tvö ár. En Sara byrjaði að æfa aftur eftir meiðslin í nóvember 2006 en fyrsti leikurinn sem hún spilaði var í janúar 2007. Og því frá í tæplega tvö ár.
Á þessu tímabili varð hún síðan fyrsti leikmaður Hauka sem spilar með A-landsliði á samatíma og hún er í Haukum, er hún kom inná í landsleik Íslands gegn Slóveníu ytra.
En samtals hefur Sara leikið 11 landsleiki, einn A-landsleik, sjö landsleiki með U19 og þrjá með U17.