Sætið í úrslitum tryggt

HaukarStrákarnir í 10. flokki unnu Stjörnuna í dag 69-58 í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta.

Haukastrákar höfðu frumkvæðið allan leikinn en það var frábært upphaf í seinni hálfleik sem lagði grunninn að góðum sigri en þá áttu þeir frábært sprett þar sem þeir skoruðu 12 stig gegn engu og juku muninn í 13 stig. Stjarnan náði ekki að brúa bilið og Haukar unnu góðan sigur.

Stigahæstur hjá Haukum var Kári Jónsson með 19 stig.

Úrslitaleikurinn er á morgun í Njarðvík kl. 13.00 gegn Njarðvík en þessi lið mættust í bikarúrslitum fyrr í vetur þar sem Haukar fóru með sigur af hólmi. Heimasíðan hvetur stuðningsmenn Hauka að mæta og hvetja strákana.

Leikurinn verður í beinni netútsendingu og tölfræðiútsendingu fyrir þá sem komast ekki.

Tölfræði leiksins

Áfram Haukar!