Frábær leikur dugði ekki til hjá stelpunum

HaukarStelpurnar hans Ingvars Guðjónssonar í 9. flokki í körfubolta voru hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í úrslitaleik Íslandsmótsins í dag. Lokatölur leiksins voru 48-43 fyrir Grindavík.

Stigahæst hjá okkar stelpum var Sylvía Rún Hálfdanardóttir með 17 stig.

Ingvar notaði marga leikmenn í leiknum og ljóst að þarna eru margir framtíðarleikmenn á ferð.

Grindavík mætir Keflavík í úrslitaleik á morgun kl. 11.00 í Njarðvík.

Tölfræði leiksins