Russell Woods er nýr leikmaður Hauka í Dominos deildinni

Russell Woods hefur skrifað undir samning um að spila með deildarmeisturum Hauka og mun spila með þeim út tímabilið 2018/2019. Woods er væntanlegur til landsins núna næstu daga.

Woods er 2,04 cm að hæð (6,8) og um 104 kg.
Woods kemur úr Missouri skólanum þar sem hann skoraði 7 stig og tók 6 fráköst að meðaltali á sínu síðasta ári. Síðustu tvö ár hefur hann spilað í Tékklandi en deildin þar er mjög sterk.
Í fyrra spilaði hann með Ostrava og stóð sig það vel að eitt besta lið Tékklands keypti hann fyrir þetta tímabil, Svitavy. Með liði Ostrava skoraði Woods 15 stig og tók 6,5 fráköst að meðaltali í leik en hann spilaði um 28 min. að meðaltali.
Liðið sem Woods spilaði með núna í vetur, Svitavy er gríðarlega vel skipað og er með 5 leikmenn frá Bandaríkjunum og skiptu þeir með sér leikjum og vildi Woods komast í lið þar sem hann spilaði reglulega.
Með Svitavy þá spilaði Woods báða leiki liðsins í evrópukeppninni og var hann þar með 10 stig og 4 fráköst að meðaltali en þar spilaði hann á móti ekki minna liðið en Istanbul og stóð sig mjög vel í þeim leik. Í Tékknesku deildinni spilaði Woods 7 leiki af 15 og var með 7,5 stig og 4 fráköst að meðaltali.

Ljóst er að Haukar eru að fá gríðarlega sterkan „inside“ spilara en hann setur góð screen og rúllar vel inní teig, einmitt það sem lið Hauka hefur skort í síðustu leikjum.

Lið Hauka er búið að styrkjast töluvert inní teig uppá síðkastið en Kristjan Leifur er að byrja að æfa aftur og svo var ráðinn evrópuleikmaður sem getur spilað 3-4 og má því segja að búið sé að fylla í þau göt sem vantaði í liðið í síðustu leikjum.

Fyrsti leikur Haukar á nýju ári verður á móti Val sunnudaginn 6. janúar kl. 20:00 en Haukar mun opna nýtt ár með tvíhöfða, því á undan, kl. 17:45 spilar kvennaliðið á móti KR en munu Haukar frumsýna 3 nýja leikmenn í þessum tveim leikjum.

Hér er hægt að sjá brot af Woods.

Highlights af Woods frá Ostrava https://www.youtube.com/watch?v=H5BR3MXgMSo&feature=youtu.be

heill leikur í eurocup á móti Istanbul #2 í svörtum búning og kemur inná í byrjun II leikhluta og spilar svo töluvert
https://www.youtube.com/watch?v=RgAy7nBLqu4&feature=youtu.be