Flugeldasala Hauka og Björgunarsveita Hafnarfjarðar á Tjarnarvöllum

Eins og undanfarin ár munu Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Knattspyrnufélagið Haukar hafa með sér samvinnu um rekstur á einum af sölustöðum Björgunarsveitarinnar.

Sölustaður Hauka er á Tjarnarvöllum og hefst salan þann 28. desember.
Styðjum við bakið á félaginu okkar og jafnframt Björgunarsveit Hafnarfjarðar og verslum á Tjarnarvöllum.
Með því styrkjum við frábært starf Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og einnig okkar frábæra félag.

Áfram Haukar!