Reykjavík Open fer fram um helgina

HaukarReykjavík Open kvenna, fer fram um helgina og munu átta lið berjast um nafnbótina, Reykjavikur Open meistarar 2009. Eitt af þeim liðum er Haukar. Leikið er í tveimur fjögurra liða riðlum. Mótið hefst á morgun, föstudag og lýkur á sunnudaginn með úrslita leikjum.

Haukar eru með HK, Fylki og Fram í riðli en í hinum riðlinum eru Víkingur, FH, Stjarnan og Valur. Leikjaplanið fyrir mótið er hér að neðan. Við hvetjum alla til að kíkja á völlinn en leikið er í Austurbergi og í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda.

Föstudagur 25. sept.
17:00 A Fram-HK Austurberg
18:00 A Haukar-Fylkir Austurberg

17:45 B Valur-FH Vodafonehöll
18:40 B Stjarnan-Víkingur Vodafonehöll

Laugardagur 26. sept.
12:00 A Haukar-Fram Austurberg
13:00 A Fylkir-HK Austurberg
14:00 A HK-Haukar Austurberg
15:00 A Fram-Fylkir Austurberg

12:00 B Stjarnan-Valur Vodafonehöll
13:00 B Víkingur-FH Vodafonehöll
14:00 B FH-Stjarnan Vodafonehöll
15:00 B Valur-Víkingur Vodafonehöll

Sunnudagur 27.sept.
10:00 kross A1-B2 Austurberg
11:00 kross A2-B1 Austurberg
12:30 3 3. sæti Austurberg
14:00 1 1. sæti Austurberg