Haukasigur á Njarðvíkingum

Haukar unnu góðan 75-50 sigur á Njarðvíkingum í Poerade bikar kvenna í kvöld og eru þar með komnar í undanúrslit og mæta Hamri á þriðjudaginn næstkomandi. Leikurinn verður á Ásvöllum og hefst kl. 19:15.

Mynd: Heather Ezell spilaði sinn fyrsta leik fyrir Hauka– stefan@haukar.is

Heather Ezell spilaði sinn fyrsta leik fyri Hauka og stimplaði sig inn í leik liðsins með stæl. Stúlkan var með fjórfallda tvennu en hún skoraði 24 stig, var með 13 fráköst, stal 10 boltum og gaf 10 stoðsendingar.

Ragna Margrét Brynjarsdóttir var með tvöfallda tvennu en hún gerði 11 stig og tók 12 fráköst. Bryndís Hanna Hreinsdóttir var næst þeim með 10 stig.

Fjórir leikmenn spiluðu sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk í kvöld en það eru Auður Íris Ólafsdóttir, Dagbjört Samúelsdóttir, Árnína Lena Rúnarsdóttir og Inga Sif Sigfúsdóttir.