Opinn fundur – vilt þú taka þátt í starfi Knattspy

Miðvikudaginn nk. þann 26. mars kl. 18:00 verður haldinn opinn fundur hjá stjórn Knattspyrnudeildar Hauka í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum. Þangað eru allir þeir velkomnir sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi deildarinnar í sumar. Það má alltaf bæta við fólki í hópinn enda nóg af verkefnum framundan í sumar.

Foreldrar iðkenda hjá Haukum eru sérstaklega hvattir til þess að koma og kynna sér starf deildarinnar innan frá, jafnvel með það í huga að taka að sér ákveðin verkefni. Það gæti t.d. snúið að utanumhaldi leikja og/eða móta yngri sem eldri flokka, kynningarstarfi, fréttaskrifum um ákveðinn flokk, osfrv.

Nánari upplýsingar veitir Kristján Ómar í síma 695 5415 á skrifstofutíma.