Norðanmenn koma í heimsókn á föstudag

Björgvin hefur verið drjúgur í síðustu leikjum

Haukar – KA í 1. deild karla á föstudag
Næsta föstudag kl. 18:15 koma KA menn í heimsókn á Ásvelli. Þá hefst 8. umferð og hafa bæði lið verið að klifra upp stigatöfluna í síðustu leikjum. Haukar sitja í 5. sæti með 11 stig en KA í 7. sæti með 10 stig. Okkar menn munu vonandi halda áfram góðu gengi eftir 3 sigurleiki í röð.
 
Haukarnir unnu gríðarlega mikilvægan leik síðasta laugardag á móti Grindvíkingum og hafa verið á góðu skriði í síðustu leikjum.
Hvetjum allt Haukafólk að mæta á völlinn og styðja okkar menn.
Áfram Haukar