Nýr samstarfsaðili við Hauka í horni

Haukar í horni eru með afsláttarkjör hjá nokkrum samstarfsaðilum og ekki úr vegi að minna fólk af og til á hvaða aðilar þetta eru og hver afslátturinn sé.

Munið að það verður að framvísa gildu Hauka í horni skírteini til að fá afsláttinn.
Í dag bættist við nýr samstarfsaðili, veitingastaðurinn Serrano.
Serrano er með veitingastaði víða um borgina og einn á Dalshrauni 11 í Hafnarfirði (sjá nánar á serrano.is)
Afslátturinn á Serrano er 15% af matseðli og það þarf að framvísa Hauka í horni skírteini.

Aðrir samstarfsaðilar:

A4 Skrifstofa og skóli Við Smáratorg í Kópavogi Afsláttur 15%  (gildir ekki af öðrum tilboðum og fartölvum) 
Apótek Hafnarfjarðar Fjóluvöllum Afsláttur 10%  (gildir ekki af lyfseðilskyldum lyfjum)
Maður Lifandi Hafnarborg, Hæðarsmára og í Borgartúni Afsláttur 10%  
Serrano Kringlan, Smáralind, Höfðatorg, N1 Hringbraut
N1 Bíldshöfða
Dalshraun 11, Hafnarfirði
 
Afsláttur 15% (af matseðli) 
Wilson´s Pizza Eddufell, Gnoðarvogur, Ánanaust Afsláttur 15% (af matseðli) 

 

Haukar í horni þakka samstarfið.