MK-Dons FC heim til Englands
Englendingarnir yfirgáfu Ísland í blíðskaparveðri á sunnudag. Daginn byrjuðu þeir á tveggja klukkustunda þrekæfingu. Hlaupið var um Ásvallasvæðið og upp á Ásfjall sem reyndar telst vera lægsta fjall á Íslandi. Stuart Murdoch framkvæmdastjóri liðsins var afar ánægður með þá aðstöðu sem þeir höfðu aðgang að á meðan á dvöl þeirra stóð. Laugardaginn notuðu þeir til að skoða Bláa lónið og kynna sér nætulífið í Reykjavík sem þeim fannst reyndar stórkostlegt. Stuart telur að liðið hafi tekið miklum framförum á meðan á dvöl þeirra hér hefur staðið og er hann því afar ánægður með dvöl liðsins á Íslandi. Þjálfar og leikmenn báðu fyrir þakklætiskveðjur til allra sem tóku þátt í að gera dvöl þeirra eins skemmtilega eins og raunin varð.
