Markaleikur í blíðskaparveðri
Þetta var síðasti leikurinn fyrir Englandsferð okkar í næstu viku og einnig síðasti leikur fyrri umferðar í riðlinum, gegn UÍA frá Austurlandi. Aðstæður voru hinar bestu, völlurinn frábær og veðrir ekki verra. Við vorum heldur seinir í gang, en skoruðum þó fyrsta markið á 8. mínútu. Hilmar Emils gerði það með flottu skoti í fyrstu snertingu yfir markmanninn eftir sendingu frá Andra. Næsta hálftíman var leikurinn frekar daufur, þó svo að hann einkenndist frekar af mörgum færum að okkar hálfu sem við hefðum mátt fara betur með. Það var síðan á 37. mínútu sem Hilmar Trausti skoraði með góðu skoti úr aukaspyrnu. Við keyrðum á þá í lokin og uppskárum tvö mörk. Eitt ‘eitt á móti markmanni’ frá Hilmari E og hitt skoraði Andri eftir klaufalegt útspark frá Varnarmanni UÍA. Staðan í hálfleik var því 4-0 okkur í vil. Eins og fyrri hálfleikinn byrjuðum við þann seinni einnig heldur illa og fengum á okkur mark á 5. mínútu seinni hálfleiks. Eftir það var leikurinn allur í okkar höndum. á 57. mínútu skoraði Hilmar T með góðum skalla frá vítateigslínunni eftir frábæra sendingu frá Guðjóni, sem kom sterkur inn fyrir Guðbjörn í hálfleik. Það liðu þó rúmar 20 mínútur þangað til næsta mark var skorað en nóg voru færin. Á þeim tíma voru gerðar skiptingar, Arnar Orri, Bjössi og Ari komu inn fyrir Ella, Dag og Jonna. Eftir það skoraði Hilmar E sitt 3. mark eftir góða móttöku við vítateiginn og kláraði af öryggi. Hann var síðan aftur á ferðinni 4 mínútum síðar og skoraði sitt 4. mark. Aðeins mínútu síðar skoraði Bjarki sitt fyrsta mark í leiknum eftir klafs í teignum. Andri kom okkur síðan í 9-1 eftir góða stungusendingu. 3 mínútum síðar skoraði hann aftur eftir glæsilega sendingu þvert yfir völlinn frá Pétri. Hilmar E fullkomnaði síðan fimmuna með góðu marki rétt fyrir leikslok. Lokatölur: 11-1
Byrjunarlið:
Mark: Beggi
Vörn: Dagur, Davíð, Pétur og Elli
Miðja: Jonni, Bjarki og Hilli T
Sókn: Guðbjörn, Andri og Hilli E
Inná komu:
Guðjón (Guðbjörn), Addi (Elli), Bjössi (Dagur), Ari (Jonni)
Mörk:
Hilli E 5, Andri 3, Hillit T 2 og Bjarki
Næsti leikur er síðan ekki fyrr en í ágúst, eða viku eftir að við komum heim frá Englandi.
