Mikilvægur leikur Haukastúlkna í kvöld gegn Grindavík

dagbjortHaukar munu etja kappi við Grindavík í Dominos deild kvenna í kvöld, miðvikudaginn 21. janúar, kl. 19:15.

Þessi sömu lið áttust við síðast liðinn laugardag í 8. liða bikarkeppni KKÍ og þar höfðu Grindvíkingar betur eftir frábæran framlengdan leik. Sá leikur var vel spilaður af báðum liðum og áttu Haukastelpurnar einn sinn besta leik á tímabilinu og leiddu leikinn lengst af. Haukarnir voru með með 14 stiga forystu í þriðja leikhluta og 12 stig í upphafi þess fjórða. Því miður náðu þær ekki að halda út en vægt til orða tekið má segja að dómararar leiksins hafi verið í aðalhlutverki í þessum leik og verulega hallað á okkar stúlkur í leiknum.

Leikurinn í kvöld er mikilvægur fyrir bæði lið, Haukar sitja í þriðja sæti en Grindvíkingar í því fjórða og munar einungis einum leik á þessum liðum og því geta Grindvíkingar jafnað Haukana með sigri. Hauka stúlkur geta aftur á móti með sigri komist í góða stöðu með að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni en Haukar hafa unnið báða leiki þessara liða í vetur í deildinni.