Þrír með fullt hús – 13 rétta

1x2Vorleikur Haukagetraun er nýlega hafinn og taka rúmlega 30 lið þátt í leiknum.
Árangur í síðustu umferð var frábær þegar 3 lið voru með fullt hús – 13 rétta !

Nýir þátttakendur eru velkomnir og eru hvattir til að koma á 2. hæðina frá kl. 10 – 13 á laugardögum og eiga þar skemmtilega stund yfir kaffibolla og spjalli við sérfræðinga á heimsmælikvarða.

Við viljum minna á að getraunanúmer Hauka er 221