Fjölnir – Haukar í kvöld kl. 19:15 í Dalhúsum

Kristinn Marinósson

Kristinn Marinósson

Gríðarlega mikilvægur leikur er í kvöld hjá strákunum í Dominos deildinni er þeir spila við Fjölnir í Dalhúsum kl. 19:15.

Leikurinn er mikilvægur fyrir bæði lið en Haukarnir eru að berjast bæði fyrr því að tryggja sig í úrslitakeppnina og um leið að reyna að ná heimavallarrétti í fyrstu umferð, en gríðarlega þéttur pakki er á milli liða í 3 – 9 sæti. Fjölnismenn þurfa einnig nauðsynlega sigur en þeir sitja á botni deildarinnar með tveim öðrum liðum og hvert stig mikilvægt í þeirri baráttu.

Haukarnir hafa tapað síðustu þrem leikjum eftir að þeir yfirspiluðu Tindastól á heimavelli og hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit. þeir eru staðráðnir í því að mæta grimmir til leiks og komast á sigurbraut aftur og ná fyrsta sigurleiknum á þessu ári.

Með sigri geta strákarnir hoppað uppí 5 sætið og verið einungis einum leik í fjórða sætið.

Við hvetjum alla stuðningsmenn Hauka til að mæta í Grafarvoginn og hvetja okkar stráka til sigurs í þessum mikilvæga leik.