Leikur tvö í einvíginu við Njarðvík í kvöld

Terrence Watson með skrímslatroðslu - Skúli Sigurðs

Haukar taka á móti Njarðvík í öðrum leik liðanna í 8 liða úrslitum Íslandsmótsins. Njarðvíkingar leiða 1-0 en það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki fer áfram í undanúrslit.

Leikur liðanna á föstudaginn síðasta var hreint út sagt magnaðu og bauð upp á allt sem alvöru körfubolti á að bjóða upp á. Það er ekki von á öðru en að sama verði upp á teningnum í kvöld þegar liðin mætast öðru sinni. 

Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður grillið á sínum stað fyrir leik. Haukum í Horni býðst svo að koma upp á pall í hálfleik gegn framvísun skyrteini en jafnframt býðst þeim að taka með sér einn félaga á leikinn sem og upp á pall út leiktíðina.

Það er um að gera að finna til rauða bolinn og mæta á leikinn í kvöld með vel smurða barkana.

Áfram Haukar