Úrslitaserían hefst á laugardaginn

Hápunktur leiktíðarinnar í Domino‘s deild kvenna er handan við hornið. Úrslitasería Hauka og Snæfells hefst á laugardaginn kl.18 í íþróttahúsinu í Stykkishólmi og það lið sem fyrr sigrar þrjá leiki hlýtur titilinn Íslandsmeistari 2014
 
Leikir þessara liða hafa verið hin mesta skemmtun í vetur og unnu Haukastelpurnar Snæfellsliðið í bikarúrslitum eins og við vitum öll. Haukar þurfa að vinna þrjá leiki til þess að verða Íslandsmeistarar og þurfa þær allan þann stuðning sem við stuðningsmenn getum veitt til þess að landa þessum sigrum sem til þarf.

Væri ekki upplagt að skella sér á rúntinn á laugardaginn, skutlast í Stykkishólm og koma við í íþróttahúsinu, þenja raddböndin og liðka hendurnar með klappi?

Fyrirhugað er að panta rútu í Hólminn og myndi sætið kosta 4.000 kr. Panta þarf sætið hjá Söru Pálma annað hvort á Facebook eða á sara.palmadottir@gmail.com fyrir kl.18, í dag, fimmtudaginn 27. mars.