Haukar í Nike skóm

Haukar og Icepharma hafa undirritað samning um að meistaraflokkar Hauka leiki í Nike skóm næstu þrjú keppnistímabil og feta þar með í fótsport leikmanna eins og Kobe Bryant og LeBron James.  Haukar eru mjög ánægðir með þennan samning sem tryggir okkar leikmönnum aðgang að bestu körfuboltaskóm sem völ er á.

Á myndinni sjást Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, sölustjóri á heilsu- og íþróttasviði Icepharma og Henning Henningsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka handsala samninginn.