Leikur þrjú er í kvöld – Sigur eða frí

Haukar eru komnir með bakið upp við vegg í 8 liða úrslitum Domino’s deildarinnar en í kvöld halda þeir til Njarðvíkur og nú þýðir ekkert annað en sigur, ellegar heilsar vorið þeim með ókærkomnu sumarfríi frá boltanum.

Síðustu tveir leikir hafa verið rosalegir. Báðir hafa þeir endað 84-88 fyrir Njarðvíkingum og mikill hasar út um allan völl. En snilldin við þetta Íslandsmót er sú að enn hafa Haukar tækifæri á að komast áfram í næstu umferð. Fyrsta skrefið er leikurinn gegn Njarðvíkingum á morgun, föstudaginn 28.3.


Nú reynir á stuðningsmenn. Ljónagryfjan er erfið heim að sækja. Húsið er lítið og þröngt og stuðningsmenn eru alveg ofan í leikmönnum. Hitinn og hávaðinn sem myndast þarna inni er rosalegur og skiptir máli að vera með meiri hávaða en heimamenn.

Þar getur þú stuðningsmaður góður skipt sköpum.

Áfram Haukar