Leiknir R. – Haukar á fimmtudag

HaukarÍ kvöld, fimmtudaginn 23.júní mætast Haukar og Leiknir R. á Leiknisvellinum í Breiðholtinu. Leikurinn verður flautaður á klukkan 20:00.

Bæði lið þurfa svo sannarlega á þremur stigum að halda í leiknum í kvöld, Haukar hafa ekki unnið leik í síðustu fjórum leikjum sínum, tapað þremur og gert eitt jafntefli.

Útlitið hjá Leikni R. sem sitja í 11.sæti deildarinnar er lítt betra, þeir hafa ekki enn unnið leik í deildinni í sumar en gert fjögur jafntefli.

 

Einn þriðji af mótinu er lokið, Haukar sitja í 5.sæti deildarinnar með 10 stig en ásamt Haukum í 6., 7., og 8.sætinu sitja einnig Þróttur R., Grótta og ÍR. Haukar eru einungis þremur stigum frá 2.sætinu.

 

Næstu umferðir eru gríðarlega mikilvægar fyrir öll lið í deildinni og þá helst að sjálfsögðu fyrir Hauka. Stuðningur við liðið er ekkert minna mikilvægara og því hvetjum við Haukafólk til að fjölmenna í Breiðholtið í kvöld.

 

Áfram Haukar!