Kræklingaveisla fyrir evrópuleikinn á sunnudaginn

KræklingaveislaÍ tilefni heimsóknar Saint-Raphael frá Frönsku Ríveríunni í Frakklandi verður slegið upp kræklingsveislu á Ásvöllum fyrir leikinn á sunnudag. Saint-Raphael er eitt öflugasta handknattleikslið sem komið hefur til landsins undanfarin ár og ætti enginn áhugamaður um hanknattleik að láta leikinn fram hjá sér fara. Herlegheitin hefjast kl 16.30 í veislusalnum á Ásvöllum og hefst leikurinn stundvíslega kl 18.00.
Vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta. Verð fyrir veisluna er 2000kr og innifalið í því er skál af krækling ásamt brauði og drykk (hvítt, kaldur eða gos). Allur ágóði rennur óskiptur til fjármögnunnar á þátttöku mfl karla í EHF-bikarnum 2015/2016 og er það því um það gera fyrir Haukafólk að mæta og fá sér dýrindis krækling og styðja Hauka í leiðinni.

Umferðin er strákarnir eru komnir í núna er 32-liða úrslit og þau 16 lið sem komast áfram leika síðan í riðlakeppni EHF-bikarsins. Eins og fyrr segir er mótherjinn franska stórliðið Saint-Raphael Handball en liðið er eitt af þeim bestu í hinn sterku deild í Frakklandi og herfur á skipa fjölmörgum landsliðsmönnum. Fyrstan af þessum landsliðsmönnum bera að telja Íslendinginn Arnór Atlason sem hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu síðastliðin 10 ár. Einnig í liðinu er landsliðsmaður Dana Alexander Lynggaard, franski landsliðsmaðurinn Adrien Dipanda, túnisbúinn Wissem Hmam auk þess eru í liðinu þrír Rúmenar, tveir Serbar og tveir Tékkar þannig að það má með sanni segja að lið Saint-Raphael sé lið í hæðsta gæðiflokki.

Haukastrákarnir eiga því verðugt verkefni fyrir höndum en með stuðningi áhorfenda er allt hægt eins og sýnt hefur sig áður hjá Haukum þegar liðið vann stórlið Veszprém hér heima fyrir nokkrum árum sem og í jafnteflinu fræga gegn Barcelona úti.

Þessi leikur er fyrri leikurinn í einvígi liðanna en seinni leikurinn verður úti viku seinna. Það er langt síðan að svona sterkt lið kom hingað til lands og er því um að gera fyrir Haukafólk sem og annað handboltaáhugafólk að fjölmenna og sá hágæða handbolta. Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa

    Húsvörður, baðvörður, óskast til starfa í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Knattspyrnufélagið Haukar óskar eftir að ráða konu í starf húsvarðar/baðvarðar í Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum. Um vaktavinnu er að ræða. Æskilegt er að að umsækjandi hafi haldgóða reynslu úr atvinnulífinu, sé reglusamur og tilgreini meðmælendur í umsókn. Umsóknir sendist á netfangið magnus@haukar.is

  • Golfmót Hauka

    Ágætu Haukafélagar. Haukamótið í golfi 2026 verður haldið á Hvaleyrarvelli föstudaginn 25. september næstkomandi. Nánari upplýsingar um tilhögun mótsins, skráningu ofl. verða sendar út síðar.

  • Andlátsfrétt

    Sigurður Jóakimsson, einn af okkar góðu og öflugu Haukafélögum lést skyndilega, laugardaginn 13. júní síðastliðinn. Sigurður Jóakimsson, eða Diddi eins og hann var að jafnaði nefndur, var mikill íþróttamaður sem átti að baki yfir 200 meistaraflokksleiki með handknattleiksliði Hauka auk þess að leika knattspyrnu í mörg ár með Haukum. Um Didda var sagt að hann…