Keflavík – Haukar í kvöld kl. 19:15

Emil skilaði þrefaldri tvennu síðast, hvað gerist í kvöldHaukarnir í mfl. kk. í körfu fara suður með sjó í kvöld og munu freista þess að halda áfram á sigurbraut og ná þriðja sigrinum í röð í Dominos deildinni.

Strákarnir mæta fullir sjáflstraust eftir gríðarlega góðan sigur á Njarðvík í síðustu umferð þar sem liðið spilaði einn sinn allra besta leik í deildinni í vetur. Þetta verður örugglega spennandi leikur þar sem Keflavík situ í öðru sæti deildarinnar með einungis tvo tapleiki í vetur.

Keflavík tapaði síðasta leik sínum í DGL höllini á móti sterku KR liði en má segja að Keflvíkingar hafi kastað sigrinum frá sér á síðustu mínutu leiksins eftir að hafa spilað mjög vel í síðari hálfleik.

það má því búast við jöfnum og spnennandi leik eins og síðast þegar þessi lið mættur í Schenkerhöllinni, en þar vann Keflavík nauman sigur.