Jafntefli gegn Breiðablik

HaukarHaukar og Breiðablik áttust við í æfingaleik í hádeginu í dag. Leikurinn fór fram í Fífunni í Kópavogi. Þetta var annar æfingaleikur Hauka á undirbúningstímabilinu en strákarnir fóru með sigur úr bítum úr þeim fyrsta, gegn HK síðasta laugardag, 3-2.

Jafntefli var hinsvegar niðurstaðan í leiknum í dag, þar sem bæði lið skoruðu sitt hvort markið. Breiðablik komust yfir um miðjan fyrri hálfleikinn, með marki úr vítaspyrnu sem þeir fengu á silfurfati.

Aron Freyr Eiríksson jafnaði hinsvegar metin í seinni hálfleik með skallamarki eftir fyrirgjöf frá Ásgeiri Þór Ingólfssyni.

Færin í leiknum í dag voru af skornum skammti og fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum eins og gefur að skilja, þar sem leikurinn endaði 1-1. 

Í fyrsta æfingaleiknum var leikmannahópur Hauka 23 leikmenn en mun færri spiluðu hinsvegar leikinn í dag.

Byrjunarlið Hauka í dag var þannig skipað:
Daði Lárusson – Benis Krasniqi, Valur Fannar Gíslason, Guðmundur Viðar Mete, Kristján Ómar Björnsson –  Sigurbjörn Örn Hreiðarson – Aron Freyr Eiríksson, Ásgeir Þór Ingólfsson, Hilmar Trausti Arnarsson, Úlfar Hrafn Pálsson – Magnús Páll Gunnarsson.

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…