Jafntefli á heimavelli gegn HK

HaukarHaukar og HK skyldu jöfn í kvöld, 1-1 þegar þau mættust í 9.umferð 1.deildar karla á Ásvöllum. Björgvin Stefánsson skoraði fyrir Hauka á 22.mínútu eftir góðan undirbúning frá jafnaldra sínum, Gunnlaugi Fannari Guðmundssyni. 

Haukar leiddu í hálfleik 1-0 en hefðu hæglega getað verið með stærra forskot í hálfleik. Haukarnir mættu hinsvegar hálf vankaðir til leiks í seinni hálfleiks og náðu aldrei neinum takti við leikinn. Það varð síðan Haukum að falli rétt fyrir leikslok þegar Atli Valsson jafnaði metin fyrir neðsta lið deildarinnar. Hvorugt liðanna skoraði fleiri mörk í leiknum en HK voru þó nær því undir lokin.

 

Næsti leikur Hauka er á útivelli gegn Þrótti Reykjavík fimmtudaginn 7.júlí. Heimavöllur Þróttara er Valbjarnarvöllur í Laugardalnum. 

 

Sjáumst þar, Áfram Haukar!