Hilmar Rafn Emilsson leikmaður Hauka hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Hilmar skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2010.
Hilmar Rafn sem er fæddur árið 1986 er uppalinn hjá Haukum og því Haukamaður í húð og hár.
Hilmar Rafn spilaði einungis 8 leiki fyrir Hauka í 2.deildinni í sumar vegna meiðsla sem voru að hrjá hann, en hann skoraði í þeim leikjum 11 mörk, góður árangur þar.
Hilmar Rafn hefur spilað 47 leiki með Haukum í meistaraflokki frá upphafi í þeim leikjum skorað 23 mörk.
Með þessum fréttum er því hægt að staðfesta það að nú eru tveir Hilmarar búnir að skrifa undir nýjan samning við Hauka á tveim dögum. Nú er bara að býða og sjá hvort að samningar við fleiri leikmenn verða ekki skrifaðir á næstu dögum.
Ef svo skemmtilega vill til að það verði gert verður það skrifað hér á síðuna við fyrsta tækifæri.
ÁFRAM HAUKAR!