Í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag, sem er á dagskrá á útvarpsstöðinni Reykjavík FM á rásinni 101.5, sem er alla virka daga milli klukkan 12:00- 13:00 valdi Garðar Gunnar Ásgeirsson lið 2.deildarinnar, en Garðar Gunnar er aðstoðarþjálfari meistaraflokks Fjölnis og spekingur þeirra í útvarpsþættinum um 2.deildina og 1.deildina. Garðar valdi fimm Haukaleikmenn í liðið og einnig valdi hann Ásgeir Ingólfsson efnilegasta leikmann deildarinnar.
Aðrir Haukamenn sem voru valdir í liðið auk Ásgeirs voru þeir Þórhallur Dan Jóhannsson aka. Kóngurinn, Kristján Ómar Björnsson aka. Rauðkálið, Goran Lukic aka. Forsetinn og Hilmar Geir Eiðsson aka. Geirfuglinn. Einnig var Andri Marteinsson aka. Sir. Andri Ferguson einn af þremur þjálfurum sem komu til greina um þjálfara ársins.
Hérna er svo liðið sem Garðar Gunnar valdi, en hann notaði leikkerfið 4-3-3;
Þorvaldur Þorsteinsson / KS/Leiftur
Vinstri bakvörður; Arnar Hallson / ÍR
Hægri bakvörður; Jón Steindór Sveinsson / Selfoss
Miðvörður; Dusan Ivkovic / KS/Leiftur
Miðvörður; Þórhallur Dan Jóhannsson / Haukar
Miðjumaður; Goran Lukic / Haukar
Miðjumaður; Kristján Ómar Björnsson / Haukar
Miðjumaður; Denis Curic / Höttur
Framherji; Hilmar Geir Eiðsson / Haukar
Framherji; Sævar Þór Gíslason / Selfoss
Framherji; Ásgeir Þór Ingólfsson / Haukar
Þjálfari; Ragnar Hauksson / KS/Leiftur
Efnilegastur; Ásgeir Þór Ingólfsson / Haukar