2.flokkur karla hefur síðastliðna þrjá laugardaga spilað leiki sína í B-riðli Haust-Faxaflóamótsins. Fyrst tóku Haukar á móti FH2 og sigruðu 4-3 og viku seinna kom Grindavík í heimsókn en fór með sigur af hólmi 2-1 þrátt fyrir að leika manni færri síðustu 20 mínúturnar. Að lokum mættust Haukar og Selfoss í leik á Ásvöllum sem endaði með 7-1 sigri Hauka.