Haukastelpur spila síðasta leik sinn í Iceland Express-deild kvenna í kvöld en lokaumferð deildarinnar fer fram í kvöld. Haukar heimsækja Keflavík í Toyota-höllina og hefst leikurinn kl. 19:15.
Leikurinn hefur enga þýðingu fyrir lokastöðuna í deildinni en Haukar eru orðnir deildarmeistarar og Keflavík endar í 2. sæti.
Leikurinn hefst kl. 19:15.
Mynd: Helena Hólm og félagar verða í Toyota-höllinni í kvöld – emil@haukar.is