Haukastelpur á Símamóti

Símamótið sem fór fram á dögunum er jafnan einn af stærstu knattspyrnuviðburðum ársins hér á landi.
Haukar tefldu fram liðum í öllum aldurshópum nú sem endranær, þar af þremur liðum í 5.flokki.
Öll liðin stóðu sig með prýði, léku skemmtilegan fótbolta og umfram allt, skemmtu sér konunglega.
A lið 5.flokks gerði sér lítið fyrir og sigraði alla sína leiki á mótinu en hlutkesti þurfti þó til að skera úr um sigurvegara í úrslitaleiknum gegn vinum okkar í FH.

Það voru sigurreifar Haukastúlkur sem hömpuðu bikarnum í leikslok.