Haukastúlkur unnu FH

HaukarHaukastúlkur mættu FH í Lengjubikar B-deild í kvöld og höfðu 2 – 0 sigur. Fyrri hálfleikur var markalaus en Hauka stjórnuðu leiknum.

Seinni hálfleikur byrjaði með sama hætti og stúlkurnar héldu áfram að stjórna leiknum. Fyrra mark Hauka kom eftir að nýr leikmaður Hauka Sara Jordan vann boltann á vítateig FH og sendi fyrir markið þar sem Sonja Guðmundsdóttir kom og skoraði af mikilli hörku.

Seinna mark Hauka skoraði Sara Jordan eftir að hafa unnið boltann aftur í vítateig FH og markmaður FH hálf varði boltann í netið við mikinn fögnuð áhorfenda.

Stúlkurnar geta orðið Lengjubikarmeistarar B-deild með sigri á ÍBV í næsta leik.