Haukar – Þór Þorláksson í kvöld kl. 19:15

finnurÞór Þorlákshöfn mætir í Schenkerhöllina og etur kappi við heimamenn í 19. umferð Dominos deildar karla í kvöld kl. 19:15

Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið en liðin eru jöfn af stigum í 4-5 sæti Dominos deildar með 11 sigra og 7 töp. Haukar unnu útileikinn í Þorlákshöfn með 18 stigum og áttu þar einn sinn besta leik á tímabilinu. Með sigri geta Haukar stígið stórt skref í átt að heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Haukar hafa verið á fínu skriði í síðustu leikjum, hafa unnið síðustu fjóra leiki og ættu því að koma með mikið sjálfstraust inn í leikinn í kvöld.

Ljóst er að bæði lið eiga eftir að selja sig dýrt í þessum leik og því er stuðningur áhorfenda mikilvægur.

Við hvetjum alla til að mæta snemma í Schenkerhöllina og fá sér börger á undan leik.