Stjarnan – Haukar í Ásgarði kl. 19:15 í kvöld

palinaDominos deild kvenna er byrjuð aftur eftir landsleikjahléið og munu Haukastelpurnar etja kappi við nágranna sína úr Garðabænum, Stjörnuna.

Haukarnir þurfa að sigra alla sína leiki sem eftir eru til að landa deildarmeistaratitlinum og því mega stelpurnar ekki koma kærulausar til leiks því Stjarnan er með hörku lið og getur gert öllum liðum skráveifu.

Gaman verður að fylgjast með landsliðsstelpunum og sjá hvernig þær koma inn eftir frábæran leik á móti Ungverjum í síðustu viku. Helena átti stjörnuleik og hefur sjaldan sést önnur eins frammistaða í Íslenska landsliðsbúningnum. Pálína átti einnig frábæran leik og þær hljóta að koma grimmar til leiks í kvöld eins og allt Haukaliðið