Haukar taka á móti Þrótti í kvöld

HaukarHaukar mæta Þrótti í 12. umferð 1. deildar karla í kvöld á Schenker-vellinum á Ásvöllum og hefst leikurinn kl. 19:15. Þetta er fyrsti leikurinn í seinni umferð 1.deildar. Hauka-fólk er hvatt til að mæta fyrr og fá sér hamborgara og janfvel einn kaldan frá kl. 18:00 í veislusalnum og hita upp fyrir leikinn!

Haukar eru sem stendur í 3. sæti með 21 stig, einu stigi á eftir Víkingi R. sem er í öðru sæti og tveimur stigum frá toppsætinu. Þróttarar eru í 11.sæti með 8 stig. Þróttur og Haukar mættust í 1.umferð 1.deildarinnar og þar unnum við góðan 2-1 sigur í Laugardalnum. Margt hefur hinsvegar gengið á frá þeim leik. Þróttarar hafa skipt um þjálfara og nokkrar mannabreytingar hafa orðið á liðunum.

Það er gríðarlega mikilvægt að stuðningsmenn Hauka fjölmenni á leikinn og hjálpi strákunum að landa þremur stigum!

Áfram Haukar!