Haukar – Selfoss í dag

Haukar_Meistaraflokkur karla_Mai2016Í dag þriðjudaginn 12. júlí ætlar stuðningsfólk Hauka að taka bíltúr á Selfoss þar sem okkar strákar mæta heimamönnum í 10. umferð Inkasso deildarinnar.

Leikurinn fer fram á JÁVERK vellinum og hefst kl. 19:15.

Bæði lið eru með 11 stig í Inkasso deildinni og því um afar mikilvægan leik að ræða.

Þ.a.l. er gríðarlega mikilvægt að Haukar fjölmenni á pallana á JÁVERK vellinum og hvetji okkar stráka til sigurs.

Áfram Haukar!