Haukar sækja Sauðkrækinga heim í kvöld

Andri skoraði síðasta mark Hauka á móti HKMfl. karla í knattspyrnu fer norður á Sauðárkrók í kvöld og mun etja kappi við Tindastól kl. 20:00

Haukur unnu HK örugglega í síðasta leik, 4 – 1 og spiluðu mjög vel í þeim leik. Strákarnir eru ákveðnir í því að halda áfram á sigurbraut og koma heim með þau þrjú stig sem í boði eru. Haukar sitja í 7-8 sæti í deildinni og geta með sigri nálgast toppliðin og náð að slíta sig vel frá botninum.

Tindastóll situr á botni deildarinnar með þrjú stig eftir þrjá jafnteflisleiki og þar af var einn af þeim leikjum á móti Haukum og eru Haukastrákarnir ólmir í að bæta fyrir þann leik.

Við hvetjum alla Haukamenn sem eru á faraldsfæti fyrir norðan að mæta á leikinn í kvöld.