Haukar og TM í samstarf

Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Heimir Heimisson framkvæmdastjóri Hauka og Gunnar Oddsson forstöðumaður hjá TMTM og knattspyrnufélagið Haukar hafa undirritað samstarfssamning um að TM verði einn af bakhjörlum Hauka næsta árið. Samningurinn felur meðal annars í sér samstarf um sölu trygginga til félagsmanna en hluti iðgjalds þeirra Haukamanna sem tryggja hjá TM rennur beint sem styrkur til félagsins.
Tengiliður Haukamanna hjá TM er Magnús Björnsson, s.
515-2642 og 821-5628. Tölvupóstur Magnúsar er: magnusb@tm.is
Mikilvægt er að þegar Haukfólk hefur samband við Magnús að það láti vita að það sé í Haukum til að Haukar fái örugglega þá þóknun sem félaginu ber samkvæmt samningi.

Áfram Haukar!