Haukar – MK Dons 0-4

Í kvöld léku Haukar æfingaleik gegn enska liðinu Milton Keynes Dons, en það lið er einmitt byggt á grunni hins fornfræga félags Wimbledon sem m.a. varð enskur bikarmeistari fyrir tæpum 15 árum þegar þeir lögðu Liverpool að velli í frægum leik. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar, liðið hefur fært sig um set í Lundúnum og spilar í ensku annarri deildinni næsta tímabil.

Okkar menn stilltu upp nánast sterkasta liði í fyrri hálfleik, fyrir utan það að Sævar Eyjólfs var á bekknum og Jöri var hvíldur, en hann á við smávægileg bakmeiðsli að stríða.

Fyrri hálfleikur einkenndist af mikilli baráttu og sást lítið af fallegu spili og færin voru af ansi skornum skammti. Okkar menn áttu þó í fullu tré við ensku atvinnumennina og hefðu með smá heppni getað potað inn marki og jafnvel mörkum. Edilon átti skot beint úr aukaspyrnu, en markvörðurinn varði skotið sem var frekar laust. Ómar Karl fékk svo fínt færi en skalli hans af stuttu færi var vel varinn.

Dómari leiksins virtist svo sleppa því að dæma vítaspyrnu á gestina, sem virtist allavega ofan úr brekku vera klárt víti, en í staðinn dæmdi hann sóknarbrot á okkar menn.

Hættulegasta færi gestanna í fyrri hálfleik kom skömmu fyrir hlé þegar skot af löngu færi lenti ofan á slánni.

Staðan sem sagt 0-0 í hálfleik og eins og áður sagði hefðu okkar menn með smá heppni getað lætt inn allavega einu marki.

Í seinni hálfleik var hins vegar allt annað Haukalið sem kom inn á völlinn, enda hafði Dervic skipt tíu leikmönnum útaf. Flestir þeirra sem komu inná í staðinn eru leikmenn 2.flokks, fyrir utan Sævar, Zoran og Róbert. Það verður að segjast að ungu drengirnir náðu aldrei almennilegum takti í leikinn og gestirnir gengu á lagið og sóttu af krafti í seinni hálfleik.

Fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós eftir u.þ.b. 56 mínútna leik, þar sem vinstri kantmaður gestanna brunaði upp kantinn og sendi ágæta sendingu inní teig sem var afgreidd af miklum myndarskap.
Gestirnir héldu áfram að sækja en okkar menn treystu á langar sendingar fram (spilamennska sem menn hafa einmitt kallað Wimbledon bolta í gegnum tíðina) á framherjana sem náðu einu og einu ágætu langskoti á markið, en ógnuðu aldrei verulega.

Annað markið kom svo 20 mín. fyrir leikslok og verður það nú eiginlega að skrifast á reikning hins unga markvarðar sem var nýkominn inná, en þó verður að segjast að leikmaður gestanna fékk ansi fínan tíma til að athafna sig fyrir utan teiginn.
Við þetta mark var sem allur vindur færi úr okkar mönnum og aðeins orðin spurning um hversu stórt tapið yrði.

Fór það svo að gestirnir bættu við tveimur mörkum, á 78. og 83. mínútu og unnu þar með nokkuð sannfærandi 0-4 sigur, eitthvað sem þó var engan veginn í kortunum í hálfleik.

Það jákvæða sem má taka út úr þessum leik er hin þokkalegasta spilamennska liðsins í fyrri hálfleik þar sem liðið gaf fá færi á sér og eins og áður sagði hefði getað sett inn eitt til tvö mörk. Vonandi nýta menn sér þetta í næsta leik sem er gegn nágrönnum okkar í Stjörnunni á laugardaginn kl. 14:00

Áfram Haukar!

Similar Posts

  • Golfmót Hauka frekari upplýsingar!

    Vinsamlegast athugið. Mótsgjaldið í Haukamótið 2026 er kr 8.000,00. Skráning í Haukamótið hefst kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar, konur og karlar, hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Nefndin

  • Haukamótið í golfi 2026.

    Haukamótið verður haldið á Hvaleyrarvelli, föstudaginn 25. september nk. Opnað verður fyrir skráningu í Golfboxinu kl. 12.00 þann 18. september og skráningu lýkur 24. september kl. 20.00. Þátttökugjald er kr. 8.000 og greiðist við skráningu. Haukafélagar konur og karlar hafa þátttökurétt í mótinu, en félagsaðild í golfklúbbi er skilyrði fyrir þátttöku. Keppt verður til verðlauna…

  • Sara Björk Gunnarsdóttir snýr heim í Hauka

    Knattspyrnufélagið Haukar hefur gengið frá tveggja ára samningi við Söru Björk Gunnarsdóttur. Sara Björk er uppalin hjá Haukum og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með félaginu. Eftir glæsilegan atvinnumannaferil erlendis hefur hún nú ákveðið að snúa aftur til uppeldisfélagsins og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar og árangurs félagsins. Markmiðið er að Sara…

  • Sumaríþróttaskóli Hauka 2026

    Sumaríþróttaskóli Hauka 2026   Íþróttaskóli Hauka verður starfræktur sumarið 2026 fyrir börn fædd 2014-2019, en skólinn hefur verið starfræktur frá árinu 2007. Íþróttaskólinn er sameiginlegt verkefni allra deilda félagsins þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta hreyfingu, þjálfun og námskeið við allra hæfi. Gert er ráð fyrir að iðkendur fái að kynnast sem flestum íþróttagreinum…

  • Knattspyrnufélagið Haukar  95 ára, 12. apríl 2026.

    Á morgun, sunnudag, 12. apríl, fögnum við  95 ára afmæli félagsins okkar.  Af því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar milli kl. 13:00 og  15:00 í anddyri Íþróttamiðstöðvarinnar.  Kæru Haukafélagar, endilega lítið við á þessum merku tímamótum  í sögu félagsins. Við erum  stolt af félaginu okkar.  Félagið stendur styrkum fótum með þróttmikið íþrótta- og…