Haukar mæta Víking Ó á laugardag kl.14

HaukarKarlalið Hauka í knattspyrnu mætir á morgun, laugardag kl.14:00 liði Víkings frá Ólafsvík. Leikurinn fer fram á rennisléttu gervigrasinu á Ásvöllum. Haukar eru taplausir í deildinni en gestirnir hafa tapað einum leik, gegn Þór á Akureyri.

Haukar sitja í þriðja sæti deildarinnar með 11 stig líkt og Fjölnir sem er í öðru sætinu með betri markatölu en Ólafsvíkingar eru í fjórða sætinu með 10 stig.  Ólafsvíkingar hafa á að skipa gríðarlega sterku liði, hópur þeirra er ekki stór en á meðan þeir sleppa við meisli geta þeir stillt um sennilega einu allra besta byrjunarliði deildarinnar. Má þar nefna leikmenn á borð við Eldar Masic, Arnar Svein Geirsson og sóknarmannin sterka Guðmund Stein Hafsteinsson.

Það er ljóst að boðið verður upp á skemmtilegan og spennandi leik á morgun og engin ástæða til annars en að fjölmenna á völlinn og styðja Hauka til sigurs!