Haukar – Keflavík í Valitor-bikarnum á morgun

Það verður stórleikur á Ásvöllum á morgun þegar Haukar taka á móti Keflavíkingum sem leika í Pepsi-deildinni. Leikurinn er í Valitor-bikarnum og erum við komnir alla leið í 16-liða úrslit. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

 Það sem er skemmtilegt við þennan leik fyrir utan þessi tvö lið er það að Hilmar Geir Eiðsson mun í fyrsta sinn mæta Haukum, en hann hefur leikið með Haukum frá barnsaldri en hann gekk hinsvegar til liðs við Keflavíkur fyrir þetta tímabil og hefur verið fastamaður í liði Keflavíkur og mun vonandi ekki láta mikið fyrir sér fara, þó svo að það sé lítil hætta á því.

Við hvetjum alla til að fjölmenna á Ásvelli á morgun, í síðasta leik gegn ÍA var líklega slegið áhorfendamet á Ásvelli og það væri nú ekki leiðinlegt að slá það met annan leikinn í röð.

Áfram Haukar!