Emil og Haukur til Sarajevo

Emil og Haukur halda til SarajevoBenedikt Guðmundsson þjálfari U-20 landsliðs karla í körfuknattleik hefur valið hópinn sem mun halda út til Sarajevo, Bosníu, þann 12. júlí næstkomandi og keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumóti U-20 landsliða.

Tveir Haukamenn eru í liðinu sem heldur utan en það eru þeir Emil Barja og Haukur Óskarsson. Haukur hefur verið fastamaður í þessu liði undanfarin ár en Emil er nýr inn í liðið.

Allur hópurinn:

Ægir Steinarsson, Newberry
Daði Grétarsson, Ármann
Emil Barja, Haukar
Martin Hermannsson, KR
Tómas Tómasson, Newberry
Arnþór Guðmundsson, Fjölnir
Haukur Óskarsson, Haukar
Oddur Ólafsson, Birmingham Southern
Haukur Pálsson, Maryland
Trausti Eiríksson, Skallagrímur
Sigurður Þórarinsson, Skallagrímur
Ragnar Nathanaelsson, Hamar