Haukar – Þór/KA/KS

Í dag, laugardaginn 27. ágúst, spilar meistaraflokkur kvenna fyrsta leik sinn í úrslitum um að komast upp í úrvalsdeildina.

Mjög mikilvægt er að okkar stelpur vinni þennan leik sinn í dag og kvetjum við því alla Haukamenn og -konur að koma og styðja við bakið á okkar stelpum!

Þær eru búnar að standa sig frábærlega í sumar og ætla að sjálfsögðu ekki að fara að gefa neitt eftir á lokasprettinum.

Leikurinn í dag byrjar klukkan 16:00 og er á Ásvöllum.

Lið Haukastúlkna í dag verður þannig skipað:

Petra

Saga Margrét Aðalheiður Fríða

Björg Chriss

Dagbjört Bjarney

Svava Linda(f)

Seinni viðureign þessara liða verður þriðjudaginn 30. ágúst á Akureyrarvelli klukkan 17:30.

Allir á völlinn í dag og áfram Haukar!