Haukar – ÍA

HaukarNæstkomandi föstudag, 5. júní, er stórleikur í 1 deild karla á Ásvöllum þegar ÍA mætir í heimsókn.  Leikurinn hefst kl. 20:00.  Haukaliðið hefur hafið tímabilið með miklum látum og eru efstir eftir fjórar umferðir með 10 stig.

Nú er þörf á öflugum stuðningi Hauka í horni.  Við hvetjum alla Haukamenn að mæta á leikinn en það er frítt inn fyrir félaga í Haukum í horni.  Sérstakur boðsmiði er í gangi fyrir foreldra yngri iðkenda og við hvetjum þau sérstaklega til að mæta á leikinn.  

Áfram Haukar. 

Haukar ÍA

Nú er lokið leik í 3 flokk kvenna í Faxaflóamóti/Haust sem haldin var á Ásvöllum við heldur erfiðar aðstæður.

Nýja gervigrasið reyndist frekar sleipt af klaka en með aðstoð góðra kústa og góðs fólks tókst að halda leikin sem var á móti ÍA.

Það er skemmst frá því að segja að Haukar unnu 9-0 og þær sem skoruðu voru Ásta Brá 4 mörk Lovísa 4 mörk og Sara1 mark.

Áfram Haukar.

Haukar-ÍA

Haukasteplurnar taka á móti hinum alræmdu ÍA mönnum á föstudaginn 10. júní. í Visa-bikarnum…

Leikurinn fer fram á Ásvöllum kl. 20:00..

Leikmenn Hauka skulu mæta tímanlega kl. 18:30!!!

Allir sannir stuðningsmenn Haukaliðsins munu láta sjá sig… Ekki láta þig vanta!!!

Áfram Haukar