Haukar Fjölnir
Í kvöld fer fram leikur í 11. umferð 1. deildar karla. Haukar taka á móti Fjölni úr Grafarvogi. Fyrri leikur þessara liða endaði 4 1 fyrir Hauka. Fjölnismenn lögðu topplið HK í síðustu umferð 2 – 1. Lið þeirra hefur verið styrkt nokkuð frá upphafi móts en þeir eru nú í 7. sæti deildarinnar og hafa fengið á sig 20 mörk eða næst flest mörk í deildinni. Munurinn á liðunum er 4 stig og því mikið í húfi fyrir okkar menn. Eftir frábæran sigur í síðasta leik gegn Stjörnunni þar sem Haukarnir, stuðningsmannklúbbur meistarflokks, fjölmenntu mæta okkar menn ákveðnir til leiks og ekkert annað en sigur kemur til greina.
Leikurinn Hefst kl. 20:00 á Ásvöllum
Fjölmennum á völlinn ÁFRAM HAUKAR !
