Þrjú stig í hús
Í gær miðvikudag 21.júlí fengum við Ægi frá Þorlákshöfn í heimsókn. Þetta var síðasti innbyrðis leikur þessara tveggja liða. Leikar fóru 10-0 fyrir heimamenn eftir að staðan í hálfleik hafði verið 7-0. Mörk Hauka skoruðu Tatjana 6, Þórdís 2, Jennifer Lynn 1 og Dagbjört 1. Maður leiksins var kjörin Jennifer Lynn Crawford og óskum við henni til hamingju með þá tilnefningu. Sérstakar þakkir fá stelpurnar í 5 og 6.fl.kv sem mættu og studdu vel við bakið á heimastúlkum.Næsti leikur liðsins verður þriðjudaginn 27.júlí á móti Keflavík á Keflavíkurvelli.
