Hafnarfjaðarslagur á sunnudaginn

Haukar

Nágrannaliðin Haukar og FH mætast næstkomandi sunnudag í Lengjubikarnum svokallaða. Leikurinn átti að fara fram í Reykjaneshöllinni en bæði leíktíma og leikstað hefur verið breytt.

Leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi og hefst leikurinn kl. 16.15. 

 

Haukar eru með þrjú stig eftir einn leik en þeir sigruðu BÍ/Bolungarvík í fyrstu umferð en þau lið mætast einmitt í 1.deildinni í sumar. 

 

Nýliðarnir Aron Smárason og Þór Steinar Ólafs. skoruðu fyrir Hauka sem og Hilmar Trausti Arnarsson úr víti.

Við hvetjum alla Haukara til að kíkja í Kórinn á sunnudaginn.