Fyrsti sigur í Pepsí-deild kvenna

HaukarHauka stelpur unnu Stjörnuna 1-0  á útivelli Pepsí deild kvenna í gærkvöldi og þar með sinn fyrsta sigur í Pepsi-deildinni.

Fyrri hálfleikur var markalaus en bæði lið áttu möguleika á að skora mörk. Besta færi Hauka í fékk Sara Jordan en skaut yfir.  

Í upphafi seinni hálfleiks var eins og  sjálfstraustið kæmi hjá stelpunum. Hauka stúlkur fóru að stjórna leiknum meira og  Ashley Myers skoraði með góðu skoti fyrir utan vítateig. Eftir markið reyndi Stjarnan að jafna metin en stelpurnar stóðu allar tilraunir þeirra af sér með mikilli prýði.

Til lukku með sigurinn stelpur.