Fréttasafn

  • Úrslitakeppni karla fer af stað

    Það er loksins komið að úrslitakeppni karla en í 8-liða úrslitum mæta strákarnir okkar Stjörnunni. Leikið verður laugardaginn 20. apríl í Schenkerhöllinni kl. 14:00. Liðin mættust tvisvar sinnum í vetur og unnu Haukar báða leikina en hart var barist í báðum leikjum. Það má búast við því sama á laugardaginn en úrslitakeppnin er nýtt mót…

  • Haukar Íslandsmeistarar í Utandeild karla

    Utandeildarlið Hauka í handbolta karla varð um helgina Íslandsmeistari Utandeildarliða eftir dramatískan sigur á liði Kórdrengja 28 – 27. Liðið varð í 4. sæti deildarinnar og var því síðasta liðið inn í úrslitin en í undanúrslitum slógu strákarnir út deildarmeistara Vals eftir hörkuleik 28 – 26. Í úrslitaleiknum mættu þeir svo liði Kórdrengja sem lenti…

  • Stelpurnar úr leik

    Meistaraflokkur kvenna í handbolta lauk leik í gær í Íslandsmótinu þegar að þær töpuðu 25 – 22 fyrir Val í þriðja leik liðanna í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Valur vann alla 3 leikina þrátt fyrir hetjulega baráttu stelpnanna en í öllum leikjunum náðu þær að halda Valsliðinu í 25 mörkum eða minna. Það var því sóknarleikurinn…

  • Ágrip af sögunni

    Það var sunnudaginn 12. apríl 1931 að 13 ungir piltar komu saman í KFUM húsinu við Hverfisgötu til að stofna nýtt íþróttafélag hér í bænum. Fyrsti formaður félagsins var kjörinn Karl Auðunsson. Á þriðja fundi  félagsins var nafn þess ákveðið, Knattspyrnufélagið Haukar. Það var séra Friðrik Friðriksson sem átti hugmyndina að nafninu sem er viss…

  • 5-0 sigur gegn Augnablik – Elín Björg með þrennu

    Haukar sigruðu Augnablik 5-0 í Lengjubikar kvenna í kvöld en leikið var á Ásvöllum. Bæði liðin leika í Inkasso deildinni í sumar. Elín Björg Símonardóttir kom okkar stelpum yfir á 7. mínútu og var svo aftur á ferðinni á 23. mínútu með góðu skallamarki eftir frábæra fyrirgjöf frá Sunnu Líf Þorbjörnsdóttur. Leli Halldórsdóttir bætti svo…

  • Haukar 88 ára – opið hús

    12. apríl 1931 komu 13 ungir piltar saman í húsi KFUM og stofnuðu Knattspyrnufélagið Hauka undir leiðsögn sr. Friðriks Friðrikssonar. Á þessum 88 árum hefur félagið vaxið og dafnað og er í dag meðal öflugustu íþróttafélaga landsins. Í tilefni þessa býður félagið Haukafólki og stuðningsmönnum til afmælisveislu nk. föstudag í anddyri íþróttahússins frá kl. 16:30 –…

  • Páskabingó Hauka 2019

    Páskabingó Hauka verður haldið laugardaginn 13. apríl nk. kl. 16:00 í Ólafssal. Að venju eru glæsilegir vinningar í boði, m.a.  páskaegg frá Góu í hinum ýmsu stærðum og gerðum. Spjaldið kostar 500 krónur. Á boðstólum verða einnig veitingar gegn vægu verði, m.a. heitt súkkulaði, kleinur og annað góðgæti. Tilvalin fjölskylduskemmtun fyrir allt Haukafólk. Fjölmennum á…