Fréttasafn

  • Haukar – ÍR

    Haukar og ÍR mættust á Ásvöllum í kvöld. Við leiddum allan fyrri hálfleik og var munurinn mestur 14-7. Undir lok fyrri hálfleiks lentum við í nokkrum brottvísunum og náðu gestirnir að saxa á forskotið. Í seinni hálfleik náðu þeir svo að jafna og komust einu marki yfir, skiptust liðin svo á að leiða leikinn. Leikurinn…

  • Leikir um helgina

    Fjörið byrjar á morgun, föstudag þegar strákarnir okkar taka á móti ÍR kl. 20:00 á Ásvöllum. Á sunnudaginn fara strákarnir norður yfir heiðar og spila við KA kl. 17:00 í KA-heimilinu. Á sama tíma en öðrum stað eiga stelpurnar okkar leik, en kl. 17:00 spila þær við Víking á Ásvöllum. Fjölmennum og styðjum liðin okkar…

  • Haukar-ÍBV mfl.kvenna

    Stelpurnar okkar tóku á móti nýkrýndum Bikarmeisturum ÍBV á Ásvöllum í kvöld. Þetta var mikill markaleikur sem endaði með sigri gestanna 34-39. ÍBV byrjaði betur 2-5 en stelpurnar okkar jöfnuðu 6-6 eftir um 10 mín. leik. Síðan var jafnræði með liðunum, 9-9, 13-14 en undir lok fyrri hálfleiks sigu gestirnir framúr og var staðan 14-18…

  • Skákæfing 2. mars

    Fín mæting þrátt fyrir að nokkrir af okkar virkustu skákmönnum væru uppteknir við að gera góða hluti á atskákmóti Hróksins. Tefldar voru 2 sinnum 11 umferðir allir við alla. 1. Heimir Ásgeirsson 20,5 af 22 2. Þorvarður Ólafsson 19,5 3. Stefán Pétursson 15 4. Sverrir Þorgeirsson 14,5 5. Ingi Traustason 13 6. Ragnar Árnason 12…

  • Haukamenn að gera það gott!

    Nokkrir meðlimir í Skákdeild Hauka tómu þátt í minningarmótinu um Jón Þorsteinsson og stóðu sig vel. Þetta voru þeir Stefán Freyr Guðmundsson sem fékk 11.5 v. og lenti í 10-14 sæti í heildina og vann fyrstu verðlaun í flokki 1901-2200 stig. Jón Magnússon sem fékk 9 vininga og vann flokk undir 1600 stigum. Frábært hjá…

  • SS Bikarinn

    Haukar og ÍBV buðu uppá frábæran handbolta í úrslitaleik SS bikarsins í Höllinni í dag. Leikurinn endaði með sigri ÍBV 35-32 og óskum við þeim til hamingju með Bikarmeistaratitilinn. Já, þetta var hörkuleikur og frábær handbolti. Margir voru á því fyrir leik að Haukastelpurnar yrðu í miklum vandræðum og að leikurinn væri nánast tapaður fyrirfram….

  • Haukastelpur í Höllinni

    Nú fer óðum að styttast í úrslitaleikinn í bikarnum hjá mfl. kvenna þar sem stelpurnar okkar spila til úrslita við lið ÍBV. Leikurinn verður í Höllinni laugardaginn 28. febrúar og hefst kl. 13:00. Miðaverð kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 400 fyrir börn. Á leikdag ætlum við að hittast á Ásvöllum til að hita okkur…

  • Skákæfing 24. Febrúar

    Góð mæting var að venju á æfingu. Sextán mættu og tefldu allir við alla. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. Heimir Ásgeirsson 14 af 15 2. Guðmundur Guðmundsson 13 3. Þorvarður Ólafsson 12,5 4. Jón Magnússon 12 5. Auðbergur Magnússon 11 6. Stefán Pétursson 9,5 7. Ingi Traustason 9 8. Grímur Ársælsson 8 9. Sverrir Þorgeirsson 7,5…

  • Sjötta umferð Hellismótsins.

    Sjötta umferð Hellismótsins var haldin í gær, mánudag, í húsakynnum Hellis. Fyrir umferðina var andrúmsloftið rafmagnað, spennan var það mikil. Mótið er opið upp á gátt og eru fleiri en tveir að bítast um sigurinn í mótinu. En snúum okkur að Haukamönnunum. Fyrstan ber að nefna Stefán Frey Guðmundsson. Hann stýrði svörtu mönnunum gegn Halldóri…

  • Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2004

    Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2004. Atskákmeistari Hafnarfjarðar er Heimir Ásgeirsson eftir bráðabana við Stefán Frey Guðmundsson. Heimir og Stefán urðu jafnir með 6 vinninga og þurfti 3 hraðskákir til að skera úr um hvor yrði Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2004. Tefldar voru 7 umferðir Monrad og varð niðurröðun efstu mann á þessa leið: 1-2. Heimir Ásgeirsson 6v. 1-2. Stefán…