Fréttasafn

  • Áfram í bikarnum

    Í gærkvöldi hófst hörkuleikur milli Hauka og Fylkis í 16. liða úrslitum bikarsins. Leikurinn hófst af krafti þar sem það eru engin önnur tækifæri í útsláttarkeppnum sem þessari. Þó svo að Fylkir eru í 2. sæti í A-riðli 2. flokks en við í C-riðli ætluðum við ekkert að gefa eftir. Leikurinn við nokkuð jafn þegar…

  • Íþróttasálfræði – Námskeið í þjálfun barna

    Knattspyrnuþjálfurum og öðrum áhugasömum gefst nú tækifæri á að taka þátt í námskeiði á vegum enska knattspyrnusambandsins sem fjallar um þjálfun barna. Námskeiðið skiptist í 6 flokka: Íþróttasálfræði fyrir knattspyrnu, áhugahvöt, hvernig börn læra færni í knattspyrnu, andlegur þroski barna, umhverfi barnsins og námskeiðsmat. Námskeiðið fer fram á netinu, er gagnvirkt og þátttökugjald er um…

  • Benedikt í Hauka!!

    Benedikt Jónasson (2300) hefur gengið til liðs við Skákdeild Hauka. Benedikt var áður í Skákfélagi Hafnarfjarðar og má því segja að hann sé kominn heim á ný. Skákdeild Hauka fagnar ekki bara góðum skákmanni heldur býður einnig góðan félaga velkominn í hópinn. Velkominn Benni!!

  • KR-rúllað upp

    Stelpurnar í 4.fl.kv. rúlluðu yfir arfaslakar KR-stúlkur í Vesturbænum dag. Unnu 17-0 og hefði sigurinn getað orðið mun stærri ef við hefðum nýtt betur færin okkar. Liðið a-lið var að láta boltann rúlla vel á milli manna. B-liði vann 7-2 og komst ágætlega frá leiknum en hafa oft spilað betur.

  • Hefst þá aftur fréttaflutningur

    Það er óhætt að segja að mikið hafi gengið á innan meistaraflokksins á undanförnum vikum. Það er vonandi að nú þegar rykið virðist vera að setjast geti menn horft saman fram á veginn og byrjað að vinna að því að koma liðinu á rétta braut. Fyrsti leikur undir stjórn Izudin Daða Dervic var gegn Njarðvíkingum,…

  • Sigur á Fylki í bikarnum, 4-2

    Haukar mættu vel stemmdir og léku á köflum vel saman, sérstaklega í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 2-0, bæði mörkin eftir ágætan samleikskafla. Haukar fengu víti í byrjun síðari hálfleiks og komust í 3-0. Í síðari hálfleik komust Fylkismenn meira inn í leikinn og meira jafnræði var með liðunum. Sigur Hauka var þó aldrei…

  • Leiknum við Eyjamenn frestað

    Strákarnir voru mættir á Ásvelli um 12 leytið á föstudaginn 25. júní, tilbúnir að bruna á Bakkaflugvöll og taka relluna yfir til Eyja. Veðrið leit hins vegar ekki vel út, tvísýnt með flug og lítið um gistingu ef við kæmumst ekki til baka að kvöldi. Janus hafði samband við þjálfara Eyjamanna og við bættist að…

  • Grillveisla

    Blásið var til grillveislu 24.júní að Smárahvammi 18, hjá Sigrúnu og Páli, til að þjappa hópnum saman fyrir leikinn við Eyjamenn. Við gæddum okkur á grilluðum hamborgurum, pylsum og grænmetisbátum og horfðum á æsispennandi leik Englendinga og Portúgala. Það náðist betri mynd af grillurunum en af strákunum sem voru niðursokknir í leikinn inni í stofu.