Æfingar hjá 2. flokk kk
Mánudagur 28. júní: 19:00 (Hvaleyrarvöllur) Þriðjudagur 29. júní: 19:00 (Hvaleyrarvöllur) Miðvikudagur 30. júní: 20:00 Ásvellir – Bikarleikur: Haukar – Fylkir. Mæting kl. 18:45
Ásvellir 1, 221 Hafnarfirði · 525 8700 · haukar@haukar.is
Mánudagur 28. júní: 19:00 (Hvaleyrarvöllur) Þriðjudagur 29. júní: 19:00 (Hvaleyrarvöllur) Miðvikudagur 30. júní: 20:00 Ásvellir – Bikarleikur: Haukar – Fylkir. Mæting kl. 18:45
Í þetta sinn var það Afturelding sem varð fyrir barðinu á okkur strákunum í 2. flokk. Við mættum nokkuð hressir til leiks eftir erfiða æfingarviku með Paul Mortimer frá Englandi. Leikurinn byrjaði þó nokkuð dauflega og ekkert gerðist fyrr en við fórum í gang eftir 20 mínútur. Um miðjan hálfleik fengum við hornspyrnu frá Hilmari…
Fimmtudaginn 24. júní nk. verður söluhátíð að Ásvöllum kl. 20. Við verðum með hárskraut, töskur, snyrtivörur, Haukabuffin ásamt ADIDAS vörum frá Músik og Sport á hreint frábæru verði. Vantar ekki alla Haukasokka og stuttbuxur? Saumur og merking munu kynna sína þjónustu. Allir aukahlutir sem eru nauðsynlegir á mót sumarsins verða á boðstólum. Komið og nýtið…
Stelpurnar okkar hafa fengið frábæran liðsstyrk, þar sem Helga Torfadóttir hefur gengið til liðs við Hauka en hún lék áður með Team Tvis Holstebro. Eins og menn vita er Helga gríðarlega öflugur markvörður og ekki síður er hún góður félagi. Við bjóðum Helgu innilega velkomna í Haukafjölskylduna og bíðum spennt að sjá til hennar á…
Þriðja námskeið Íþrótta- og knattspyrnuskóla Hauka hefst á Ásvöllum mánudaginn 21. júní. Mjög góð þátttaka hefur verið á fyrstu tveimur námskeiðum sumarsins og eru nýir þátttakendur boðnir velkomnir. Skráning eða frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu knattspyrnudeildar eða í vallarhúsi frá 08:45 – 12:00 alla virka daga vikunnar.
Mánudaginn 21. júní kl. 13:00 hefst síðasta vika í Knattspyrnuakademíu Wimbledon og Hauka. Gestakennari þessa viku er Paul Mortimer fyrrum atvinnumaður og núverandi unglingaþjálfari U-16 ára liðs F.C. Wimbledon (sjá mynd). Iðkendur í 5., 4. og 3. aldursflokki eru sérstaklega hvattir til þáttöku. Skrásetning er á netinu eða í hádegi á mánudaginn á Ásvöllum. EINSTAKT…
Öðru námskeiði af þremur í Knattspyrnuakademíu Wimbledon og Hauka lýkur laugardaginn 19. júní. Um 50 krakkar á aldrinum 9-15 ára hafa sótt akademíuna þessa viku og er það metaðsókn. Æfingar hafa tekist mjög vel undir stjórn Martyns Heather. Hann hefur verið mjög sáttur við hve krakkarnir hafa verið fljótir að læra eða tileinka sér nýjar…
Fundur vegna utanlandsferðar 2. og 3. fl. kk í sumar verður laugardaginn 19. júní kl. 12:00 á Ásvöllum. Mætið stundvíslega og látið foreldra ykkar vita. Daði Rafnsson og Martyn Heather frá Wimbledon, sem nú er gestakennari í Knattspyrnuakademíu Wimbledon og Hauka mun kynna dagskrá leikja og svara spurningum.
Stelpurnar í 6. flokk lögðu FH stelpurnar í báðum 17. júní leikjunum sem fram fóru á Víðistaðatúni. Fyrri leikurinn fór 3 – 1 fyrir Hauka en seinni leikurinn fór 5 – 0. Stelpurnar stóðu sig frábærlega og fjöldi foreldra stóð á hlíðarlínunni og hvöttu stelpurnar.
Alls mættu 41 Haukastrákur á Víðistaðartún. Við unnum tvo leiki, gerðum eitt jafntefli og töpuðum tveimur. Umgjörðin var öll hin glæsilegasta og verðlaunapeningar fyrir hvern dreng. Allir strákarnir stóðu sig vel og voru félagi sínu til sóma. Myndir af Haukastrákunum er hægt að skoða á myndasíðunni.